Samstarf við Móanóru
14/July/10 14:00 Filed in: Dagbók
Við Dansandi drengir ætlum að fara vinna og dansa með Móanóru.
Danstríóið Móanóra samanstendur af Hildigunni Önnu Hall, Hildi Margréti Jóhannsdóttur og Snæfríði Ingvarsdóttur. Allar hafa þær stundað dansnám frá unga aldri bæði í klassískum ballett og nútímadansi og lagt stund á tónlistarnám. Þær hafa dansað mikið saman undanfarin ár og í vor luku þær öðru ári framhaldsdeildar Listdansskóla Íslands á nútímadansbraut. Móanóra starfar nú sem Sumarlisthópur á vegum Hins hússins og mun koma fram víðs vegar um bæinn.
Markmið danstríósins er að kynna hinar ýmsu hliðar listdansins fyrir gangandi vegfarendum og leggur það áherslu á að gleðja augað með fjölbreyttum uppákomum. Stelpurnar mynda form og uppstillingar með tilliti til bygginga og annarra umhverfisþátta. Þær munu nýta fjölbreytt umhverfi, skúmaskot miðbæjarins, bekki, grindverk og styttur.
Mikil fjölbreytni og líflegir búningar einkenna danstríóið og mun þeim bregða fyrir víða um miðbæinn í sumar.
Þið getið nálgast Móanóru á Facebook eða sent skeyti á danstrio@gmail.com