Finnlandsferð

Tveir meðlemir hópsins Dansandi drengir fóru til finnlands þann 15. Júní til 24. Júní til að taka þátt í hinum árlega viðburði Kuopio bæjar, Kuopio Dans Festival. Haldið hefur verið uppá þessa árlegu hátíð í u.þ.b. 30 ár. Dansatriði úr öllum heimshornum koma þarna saman og eru sýnd yfir vikuna sem hátíðin varir. Mikil aðsókn er að þessum sýningum og ferðamenn koma úr öllum áttum. Yfirleitt er uppselt eða rétt nokkur pláss eftir í hornunum sýningarsalanna.

Drengirnir Sveinn Breki og Karl Hjaltason voru meðal þeirra Íslendinga sem voru svo heppnir að fá það tækifæri að fara út á vegum styrks sem Isto Turpeinen sótti um. Gisting matur og allt námskeiðið var greitt niður með styrknum. Á namskeiðinu fengu þeir kennslu 3 - 4 sinnum á dag, af þrem mjög mismunandi danskennurum. Í lok námskeiðsins sömdu kennararnir nokkur dansatriði sem þátttakendur námskeiðsins sýndu þann 23. í Kuopio Music Center.

Sveinn: Þó að maður hafi verið í góðu formi áður enn maður fór út þá fór þetta algerlega með mig líkamlega. Ég lærði nýa danstækni og allskonar trix. Mér fannst flott að sjá hvernig allur bærinn hafði áhuga á dansinum og bara dansmenninguna í Kuopio. Kuoopio Dans Festival er hátíð sem ég ætla að mæta á aftur og taka þátt í sem áhorfandi og vonandi líka sem dansari.

Karl seigist vera sáttur með að hafa farið aftur út á þetta námskeið í annað skipti, líka bara til að sjá alla þá stórkostlegu dansflokka sem sýna á Kuopio Dancefestival. Auðvitað er æðislegt líka að fá að dansa fyrir enhvern og það á meðan aðrir danarar fylgjast með og gætu fengið áhuga á manni sem dansara Segir Karl. Enda hafa margir dansarar fengið vinnu eftir að kynnast eða eftir að hafa sýnt á þessum viðburð