Klassíkin með Stephen

Á hverrjum morgni eftir morgun fundinn fara menn að hita upp með klassískum listdans tíma með Stephen Sheriff.

Fyrstu tvær vikurnar kennir hin víðfrægi Stephan Sheriff klassíkan listdans í skólanum snemma. Sem betur fer hefur hópurinn góðan grunn í klassíkinni og þeim gengur vel í tímanum. Við erum mjög heppnir að fá þann hæfileikaríka Stephen Sheriff hér til okkar í sumar. Stephen kennir hjá Rambert School og Ballet and Contemporary Dance í London og er mikill reynslubolti á þessu sviði. Nafn hans hefur birst víða um heim.

Stephan Sheriff menntaði sig í Royal Ballet School í London og dansaði síðan með the Royal ballet í 8 ár. Síðar starfaði hann sem dansari með hinum virta dansflokki Netherlands Dance Theatre. Eftir það með skoska balletinum og Rambert flokknum í London sem hefur getið sér mjög gott víða um heim. Síðustu 10 ár hefur Stephen verið lausráðinn listdanskennari víða um heim. Má nefna að hann hefur kennt hjá hinum fræga dansflokki Culberg balletten og Óperuballett Gautaborgar. Nú kennir hann hjá Rambert ballet og í Contemporary dance school í London.

Við drengirnir eru mjög heppnir að fá það tækifæri að læra hjá honum Stephen. Þá sérstaklega af því að við getum nýtt kennsluna í verkefnið sem við tókum okkur fyrir hendur hjá Hinu húsinu. Hann kennir okkur oft stutta dansbúta sem við viljun nota í verkum og flytja síðar í miðbæ Reykjavíkur að námskeiði loknu. Drengirnir vilja halda fría ballet tíma í miðborginni og leyfa öllum að vera með. Hópurinn er að nýta klassísku taktanna frá Stephen Sheriff og sýna dans. Þeir ætla að sýna þennan dans í lok hvers ballet tíma.