17. júní

Hátíð var niðrí bæ og fólkið streymdi um göturnar. Veðrið var gott þótt sólin faldi sig á bakvið nokkur ský. Fjöldi leiktækja og sölubásna voru á svæðinu ásamt fjölda tónlistar og skemmtiatriða. Meðal þeirra voru danshóparnir Móanóra og Dansandi drengir að sýna saman samið dansverk.

Dansararnir voru málaðir silfurlitaðir og gerðir að styttum. Stytturnar gengu hægt um götur borgarinnar og fjöldinn fylgdist grant með þessum undarlegu styttum. Stytturnar gengu að raunverulegu styttunni við MR og notuðu hana sem sviðsmynd. Stytturnar mynduðu eina heild. Stytturnar notuðu umhverfið upp Laugarveginn og enduðu í uppá húsþaki í Hjartagarðinum og sýndu loka dansinn.