Stiga dans

17. júní

Hátíð var niðrí bæ og fólkið streymdi um göturnar. Veðrið var gott þótt sólin faldi sig á bakvið nokkur ský. Fjöldi leiktækja og sölubásna voru á svæðinu ásamt fjölda tónlistar og skemmtiatriða. Meðal þeirra voru danshóparnir Móanóra og Dansandi drengir að sýna saman samið dansverk.

Dansararnir voru málaðir silfurlitaðir og gerðir að styttum. Stytturnar gengu hægt um götur borgarinnar og fjöldinn fylgdist grant með þessum undarlegu styttum. Stytturnar gengu að raunverulegu styttunni við MR og notuðu hana sem sviðsmynd. Stytturnar mynduðu eina heild. Stytturnar notuðu umhverfið upp Laugarveginn og enduðu í uppá húsþaki í Hjartagarðinum og sýndu loka dansinn.

Finnlandsferð

Tveir meðlemir hópsins Dansandi drengir fóru til finnlands þann 15. Júní til 24. Júní til að taka þátt í hinum árlega viðburði Kuopio bæjar, Kuopio Dans Festival. Dansatriði úr öllum heimshornum koma þarna saman og eru sýnd yfir vikuna sem hátíðin varir. Mikil aðsókn er að þessum sýningum og ferðamenn koma úr öllum áttum. Drengirnir Sveinn Breki og Karl Hjaltason voru meðal þeirra Íslendinga sem voru svo heppnir að fá það tækifæri að fara út á vegum styrks sem Isto Turpeinen sótti um. Þó að maður hafi verið í góðu formi áður enn maður fór út þá fór þetta algerlega með þeim líkamlega. Read More...

Með Groove'ið í lagi



Föstudagurinn 11. Júni
Klukkan 12 fóru allir hóparnir mættir á sína staði til þess að sýna það sem þau höfðu unnið að seinustu daga. Veðrið var mjög gott, lítill vindur, sól og frekar hlítt. Bærinn fór að fyllast uppúr hálf 1 og klukkan 1 voru all margir að njóta bæarlífsins og svo kallað föstudags fiðrildisins. Danshóparnir Móanóra og Dansandi drengir fluttu verk að nafni „The groove to nobodys buisness“ en hægt er að lesa meir um það annars staðar á síðunni. Fólkið í bænum tók mjög vel í verkið og tók þátt í gleðinni sem fylgdi verkinu.

Föstudags Groove

Hóparnir Dansandi drengir og Móanóra ætla að vinna saman dansverkum í sumar. Þau munu dansa dans sem samin var af Camille A. Brown’s á vegum Alvin Ailey American Dance Theater. Dansinn er kallaður The Groove To Nobody’s Business. The Groove To Nobody’s Business er um ólíkir einstaklinga sem mætast á stoppistöð og bíða eftir strætó. Þessir mismunandi einstaklingar sýna mikinn ‘attitude’ í framkomu og samkiptum. Svo brjótst þau uppí dans. Stígum dans með eitt af okkar uppáhald blues lögum “What’D I Say” með Ray Charles.

Read More...

Samstarf við Móanóru

Danstríóið Móanóra samanstendur ungum dans dömum úr Listdansskóla Íslands. Þær hafa dansað mikið saman undanfarin ár og í vor luku þær öðru ári framhaldsdeildar Listdansskóla Íslands á nútímadansbraut. Móanóra starfar nú sem Sumarlisthópur á vegum Hins hússins. Þær munu vera í samstarfi og koma fram með Dansandi drengjum víðs vegar um bæinn. Markmið danstríósins er að kynna hinar ýmsu hliðar listdansins fyrir gangandi vegfarendum og leggur það áherslu á að gleðja augað með fjölbreyttum uppákomum. Read More...

Klassíkin með Stephen

Fyrstu tvær vikurnar kennir hin víðfrægi Stephan Sheriff klassíkan listdans í skólanum snemma. Hann er mikill reynslubolti á þessu sviði. Við drengirnir eru mjög heppnir að fá það tækifæri að læra hjá honum Stephen. Drengirnir vilja halda fría ballet tíma í miðborginni og leyfa öllum að vera með. Hópurinn er að nýta klassísku taktanna frá Stephen Sheriff og sýna dans. Þeir ætla að sýna þennan dans í lok hvers ballet tíma.
Read More...