Dansandi drengir er hópur af ungum, einstaklega glæsilegum strákum sem hafa það sameiginlegt að elska dans í allskyns formum.
Markmið okkar er að koma dansi nær menningarlífi Reykjvíkurborgar og sýna að hann geti höfðað til allra. Drengir hafa áhuga á að læra nýja dansstíla, henda inn óvæntum gjörningum og koma fólki á óvart. Hópurinn mun lífga upp á borgina og kæta vegfarendur með dansinum á eins fjölbreyttan hátt og náttúrulögmálin leyfa.
Að verkefninu standa fjórir dansandi drengir; Karl Friðrik Hjaltasson, Kolbeinn Ingi Björnsson, Sveinn Breki Hróbartsson og Viktor Már Leifsson. Við drengirnir höfum mjög mismunandi bakgrunn í dansi en nú stundum við allir dansnám við Listdansskóla Íslands. Hópurinn hefur tileinkað sér ólíka dansstíla; samkvæmisdans, breakdans, spunadans, nútímadans og klassískan listdans.
Við erum afar þakklátir að fá þetta tækifæri til að getað starfað fyrir hönd Hins hússins. Listhópar Hins hússins veitir ungum listamönnum tækifæri til að prófa sig áfram í list sinni. Það veitir okkur stuðning og hvatningu. Hitt húsið hefur það markmið að efla þáttöku ungs fólks í samfélaginu. Við erum einn af fjölmörgum hópum sumarsins 2010, en allir hóparnir eru skapandi og spennandi.
Við viljum þakka Láru skólastjóra Listdansskólans fyrir að veita okkur húsnæði og aðstoð. Einnig kennurum skólans fyrir að aðstoða okkur við æfingar og veita okkur ráðgjöf.